AEG Þurrkari 7000 DelicateCare 9kg m/varmadælu svartur
HT916 900 418
AEG þurrkari sem er með varmadælutækni, tímastillingu og rakaskynjara. Hann fer vel með fötin þín, með sparnaðarkerfi og kolalausum mótor. Breytir gufu í vatn og dælir því upp í tank sem er auðvelt er að tæma. Þessi þurrkari er með 9 kg þurrkgetu og er frábær valkostur fyrir öll heimili, stór sem smá.
189.990 kr.
5 á lager
Upplýsingar
Varmadælutækni: Vilt þú vera umhverfisvæn/n og sparneytnin/n en jafnframt geta þurrkað þvottinn þinn á skilvirkan máta? Þá er varmadæla málið fyrir þig en meginatriðið í
varmadælutækninni er hæfileikinn til að endurnýta umfram hita eftir að rakt
loft hefur kólnað og þéttst. Þessi tækni gerir þurrkaranum einnig kleift að
þurrka þvottinn við lægra hitastig sem fer betur með þvottinn. Varmadælutæknin lækkar orkunotkunina umtalsvert, þurrkar á lægra hitastigi og fer þar af leiðandi betur með þvottinn
og veskið.
Kerfi: Hægt er að velja um fjölda kerfa sem henta fyrir allar týpur af fötum, þar á meðal rúmföt, handklæði og viðkvæm föt. Ull, og blandaður þvottur. Hægt er að velja um þrjú þurrkstig, þurrt, meðal þurrt, strauþurrt.
Rakaskynjun: Mælir rakastigið í þvottinum og stillir síðan þurrktímann eftir rakastigi hans og þyngd. Þannig að þurrkunin gengur hratt og vel fyrir sig og notar sem minnsta orku. Með þessari tækni verður þvotturinn
aldrei ofþurrkaður.
Krumpuvörn: Bættu krumpuvörn við þurrkkerfið og eftir þurrkun mun þurrkarinn velta
tromlunni af og til án hita í allt að 180 mínútur. Þetta kemur í veg fyrir að
þvotturinn þinn liggi of lengi á sama stað á meðan hann er enn heitur og að þannig
myndist krumpur í honum.
Orkuflokkur: Þurrkarinn er í orkuflokki C, sem þýðir að hann er mjög
umhverfisvænn og hjálpar þér að draga úr orkunotkun.
Tímastilling: Er tilvalin ef þú vilt að þurrkarinn fari í gang á ákveðnum tíma og verði
að klára að þurrka um það leyti sem þú kemur heim úr vinnu eða skóla.
Uppsetning: Hægt er að nota gúmmífætur undir vélina til að styðja betur við hana
og gera hana enn hljóðlátari. Einnig er hægt að kaupa sérstakt festiset ef
ætlunin er að setja þurrkarann ofan á þvottavélina.
Og svo hitt: Áminning um losun vatnstanks, hreinsun sigtis og þéttibúnaðs. Sjálfvirk slökkvun ef gleymist að
slökkva á þurrkaranum sem dregur úr orkunotkun. Hljóðmerki sem minnir á að
þurrkun sé lokið.
Eiginleikar
| Gerð / Sería | DelicateCare |
|---|---|
| Hljóðflokkur | 63 dB (B) |
| Kolalaus mótor | Já |
| Litur | Svartur |
| Ljós í tromlu | Já |
| Módel númer | TR734L95G |
| Orkumerking | C |
| Orkunýtni á 100 lotur | 106 kWh |
| Sería | 7000 |
| Strikamerki | 7333394124599 |
| Tromla (L) | 118 |
| Tækjamál HxBxD (cm) | 85,0 x 59,6 x 63,6 |
| Vörumerki | AEG |
| Þyngd (kg) | 50,5 |
| Barkalaus | Já |
| Sýnir eftirstöðvar tíma | Já |
| Hurðarlöm | Hægra megin (hægt að breyta opnun) |
| Krumpuvörn | Já |
| Skógrind | Nei |
| Tímastýring | Já (Hægt að stjórna tímalengd á þurrki) |
| Varmadælutækni | Já |
| Þurrkgeta (kg) | 9 |
| Þurrkhæfni | B |
| Vatnstankur (L) | 5,56 |



